Hvað eiga vinstri menn að kjósa?

Kalla eftir nýjjum vinstri flokk sem ég get kosið! Er engan vegn að samsama mig með áherslum Vinstri grænna núna.
mbl.is Guðfríður Lilja sett af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki allt sem sýnist.

Vona að þeir sem þiggi þetta boð geri sér grein fyrir því að með því er verið að koma þeim af atvinnuleysisbótum (sem er gott í sjálfu sér) yfir á námslán sem eru mun lægri en atvinnuleysisbæturnar. Ef fólk á bágt með að framfleyta sér á bótunum þá á það engan vegin eftir að lifa af námslánunum. Ég að vísu hef aldrei skilið þessa áherslu hjá stjórnvöldum þar sem greiða þarf lánin til baka en ekki fæst neitt til baka af atvinnuleysisbótum.
mbl.is Greiða skólagjöld fyrir atvinnulausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað á eftir að vera skrifað um viðbrögð Vilhjálms

Gaman væri að fá skýringu á því hvers vegna Vilhjálmur neitaði að taka við gjafabréfi frá Iceland Express.. greinilega ekki búin að fylgjast nægilega vel með upp á síðkast.
mbl.is Afþakkaði gjafabréf í Útsvari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð Björgólfsfeðga o.fl.

Ég held að enginn í þessu samfélag komi til með að sætta sig við það að Björgólfsfeðgar fái þetta afskrifað. Ef það gerist verður blóðugt stríð. Staðan er þannig í dag að við sættum okkur ekki við það að þeir sem fengu bankana nánast gefna og settu íslensku þjóðina á hausinn gangi í burtu án nokkurrar ábyrgðar. Get að vísu ekki skilið það að þessir menn setji ekki allt það sem þeir geta í það að rétta þjóðina við!
mbl.is Varar við borgarastyrjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er þetta hægt.

Ég spyr bara eins og fávís kona, hvernig í veröldinni gátu Sjálfstæðis og Framsóknarflokkur komið okkur í þessa  aðsöðu? Það að við stöndum í þessum sporum er bara á ábyrgð þessara flokka og hvernig væri að þeir tækju það til sín og viðurkenndu það. Það myndi allavega lyfta af okkur einhverri andlegri birgði.
mbl.is Handbært fé ríkissjóðs minnkar um 72,4 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjandans bull

Ég get nú ekki orða bundist núna. Hvernig dettur einhverjum í hug að bera það á borð fyrir okkur að lögreglumaður (líklegast fullþjálfaður) geri ekki greinamun á einhverju sem er kastað að honum eða skotið úr loftbyssu? Hversu heimsk eigum við eiginlega að vera? Það hefur nú lengi verið svo í   þessu þjóðfélagi að innbrot í banka (og þar með stuldur á peningum er miklu alvarlega afbrot  en árás og misþyrming á manneskjum svo furðulegt sem það nú svo er. Við þurfum nú ekki annað en að skoða dóma bæði héraðsdómara og hæstaréttardómara til að sjá það
mbl.is Snúið við vegna neyðarkalls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins Barbie kaka

Þar sem ég hef glatað öllum myndunum mínum af Barbie kökunum sem ég hef bakað í gegn um tíðina þá tók ég mig til í dag og bakaði og skreytti eina, ekki fljótlegasta job í heimi en vel þess virði þegar vel tekst uppbarbie_og_fl_020_812446.jpgNærmynd

Athugasemdir ekki leyfðar!!!

Ósköp þykir mér leiðinlegt að lesa blogg frá fólki sem lætur allan andsk....... vaða, slúður og rógburð um hina og þessa og leyfir svo ekki athugasemdir á færslurnar. Mín skoðun er sú að það eigi að loka síðum þess fólks. Eins finnst mér alveg ömurlegt þegar menn í framboði eins og Jón Magnússon leyfa ekki ath.semdir án þess að samþykkja þær. Þora menn ekki í opin skoðanaskipti eða hvað? Eru þeir hræddir við það að sannleikurinn komi aftan að þeim í formi athugasemda sem þeir hafi ekki haft tækifæri til að lesa og samþykkja. Ja spyr sá sem ekki veit.

Bara mín skoðun.


Siglufjörður og skírn

Jæja þá er mikilli vinnutörn lokið og hægt að snúa sér að því að lifa venjulegu lífi. Ekki það að ég ætli að kvarta yfir því að hafa mikið að gera í vinnunni. Get ekki annað en hugsað til allra þeirra sem hafa misst vinnuna síðustu mánuði og verið þakklát fyrir mitt.

En að einhverju skemmtilegu. Daginn fyrir gamlársdag datt okkur skötuhjúunum í hug að það væri bara ekkert sniðugt að hanga ein heima um áramótin. Ekkert af okkar fólki hjá okkur eða nálægt okkur og bara spurningin í hvora áttina við ættum að þeytast. Þar sem hún Drífa mín átti náttúrulega litla pjakkinn sinn í lok október og við ekki séð hann síðan hann var 5 daga gamall þá þótti okkur nærtækast að fara þangað.  Við skelltum okkur á Siglufjörð á gamlársdag og áttum yndislegan tíma með Drífu, Gauta og Jóhanni Gauta yfir áramótin, vorum boðin í mat til foreldra Gauta á gamlárskvöld og að sjálfsögðu urðum við ekki fyrir vonbrigðum þar. Gestrisin með eindæmum Guðný og Sveinn. Þegar við vorum að búa okkur til heimferðar á föstudegi kom í ljós að Gauti þyrfti líklegast að vinna alla helgina og Drífa mín ákvað að koma með okkur til Búðardals og Gauti ætlaði að sækja hana og Jóhann Gauta einhverntíma í vikunni á eftir.......... hmmmmmmm. Minn maður hafði náttúrulega ekki verið án konu og barns áður og að sjálfsögðu var hann kominn á laugardeginum alveg viðþolslaus. Karlmenn eru alltaf samir við sig. 

Vikan á eftir fór í að hafa sig í það að baka skírnartertuna fyrir Katrinu litlu og hafðist það jú allt. Hef að vísu aldrei komist upp á lagið með blessaðar súkkulaðiskreytingarnar á marsipankökunum en held að þetta  sé þó það skársta sem ég hef gert í þeim efnum. Ætla allavega að láta mig hafa það að skella mynd hér inn.

Skírnarterta Katrinu Lilju

 

 Held ég verði að æfa mig aðeins betur í þessum skreytingum. Er góð í brauðtertum og barbiekökum en get ekki sagt að þetta sé mitt sérsvið. Ætla að reyna að nálgast myndir af þeim tertum til að henda hér inn en í smá basli með það þar sem blessuð tölvan sem geymdi þær myndir hrundi.

 

En eigið öll góðar stundir.


Næsta síða »

Höfundur

Helga Jónsdóttir
Helga Jónsdóttir

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband