Siglufjörður og skírn

Jæja þá er mikilli vinnutörn lokið og hægt að snúa sér að því að lifa venjulegu lífi. Ekki það að ég ætli að kvarta yfir því að hafa mikið að gera í vinnunni. Get ekki annað en hugsað til allra þeirra sem hafa misst vinnuna síðustu mánuði og verið þakklát fyrir mitt.

En að einhverju skemmtilegu. Daginn fyrir gamlársdag datt okkur skötuhjúunum í hug að það væri bara ekkert sniðugt að hanga ein heima um áramótin. Ekkert af okkar fólki hjá okkur eða nálægt okkur og bara spurningin í hvora áttina við ættum að þeytast. Þar sem hún Drífa mín átti náttúrulega litla pjakkinn sinn í lok október og við ekki séð hann síðan hann var 5 daga gamall þá þótti okkur nærtækast að fara þangað.  Við skelltum okkur á Siglufjörð á gamlársdag og áttum yndislegan tíma með Drífu, Gauta og Jóhanni Gauta yfir áramótin, vorum boðin í mat til foreldra Gauta á gamlárskvöld og að sjálfsögðu urðum við ekki fyrir vonbrigðum þar. Gestrisin með eindæmum Guðný og Sveinn. Þegar við vorum að búa okkur til heimferðar á föstudegi kom í ljós að Gauti þyrfti líklegast að vinna alla helgina og Drífa mín ákvað að koma með okkur til Búðardals og Gauti ætlaði að sækja hana og Jóhann Gauta einhverntíma í vikunni á eftir.......... hmmmmmmm. Minn maður hafði náttúrulega ekki verið án konu og barns áður og að sjálfsögðu var hann kominn á laugardeginum alveg viðþolslaus. Karlmenn eru alltaf samir við sig. 

Vikan á eftir fór í að hafa sig í það að baka skírnartertuna fyrir Katrinu litlu og hafðist það jú allt. Hef að vísu aldrei komist upp á lagið með blessaðar súkkulaðiskreytingarnar á marsipankökunum en held að þetta  sé þó það skársta sem ég hef gert í þeim efnum. Ætla allavega að láta mig hafa það að skella mynd hér inn.

Skírnarterta Katrinu Lilju

 

 Held ég verði að æfa mig aðeins betur í þessum skreytingum. Er góð í brauðtertum og barbiekökum en get ekki sagt að þetta sé mitt sérsvið. Ætla að reyna að nálgast myndir af þeim tertum til að henda hér inn en í smá basli með það þar sem blessuð tölvan sem geymdi þær myndir hrundi.

 

En eigið öll góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Jónsdóttir
Helga Jónsdóttir

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband